Fyrirspurn
Hörður Ólafsson, Bárugata 15, 101 Reykjavík
Jórunn Ósk Frímannsd Jensen, Bárugata 15, 101 Reykjavík
Lára Magnúsardóttir, Bárugata 15, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka svalir á 3. hæð, bæta við glugga á austurhlið 2. hæðar,
minnka stigahús til að stækka íbúð 0201 auk ýmissa smávægilegra áður gerðra breytinga
á innra skipulagi í íbúðarhúsi og sameina í einn alla matshluta á lóð nr. 15 við Bárugötu.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. júlí 2021, bréf frá hönnuði dags. 3.
ágúst 2021, húsaskoðunarskýrsla dags. 3, september 2021 og yfirlit breytinga.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. október 2021
fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2021. Erindi var
grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bárugötu 13 og Öldugötu 12 og 14 frá 14.
september 2021 til og með 12. október 2021. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður
fram tölvupóstur/samþykki Jóns Gunnlaugs Jónassonar dags. 27. september 2021.