Rafstöðvarvegur 1A
Rafstöðvarvegur 1A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1138
2. nóvember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
430321-0800 Artafl ehf., Rafstöðvarvegi 1A, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir veitingastað í fl. II tegund a, veitingahús, fyrir 100 gesti auk 20 gesta í galleríi, breyta rými 0106 og áður gerðum breytingum t.a.m. er rými stækkað með því að færa út gluggafront, eldhús og starfsmannaaðstaða stækkuð, bætt við salernum, gangur breikkaður sem og stigi upp á millipall, aðal inngangshurð er snúið og flóttaleið er breytt í vængjahurð með panikslá, í húsi á lóð 1A við Rafstöðvarveg. Erindi fylgir bréf frá verkfræðistofunni Möndull dags. 20. júlí 2021, umsögn brunahönnuðar dags. 1. september 2021 og samþykki sumra eigenda dags. 13. september 2021. Stækkun húsnæðis er: 27,4 ferm., 142,8 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar.
Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Skilyrt er að
eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist
gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110748 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073113