610786-1629 Dverghamrar ehf., Lækjarbergi 46, 221 Hafnarfjörður
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055985 þannig að stærðum, innra skipulagi
og eignarhaldi hefur verið breytt og skráningartafla og rýmisnúmer uppfærð fyrir
geymslur í kjallara húss nr. 6 og 8 á lóð nr. 2 við Skógarveg.
Erindi fylgir ódagsett skýringarbréf frá hönnuði og yfirlit breytinga á A3 afriti af
aðalteikningum samþykktum 12. nóvember 2019.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.