Daði Sverrisson, Skólavörðustígur 19, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að koma fyrir stiga á milli hæða og sameina íbúðir 0301 og 0401 í
eina íbúð í húsi á lóð nr. 19 við Skólavörðustíg.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. ágúst 2021.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.