Laugavegur 166
Laugavegur 166
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1135
12. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
690981-0259 Ríkiseignir, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi 4. hæðar þar sem eldhús, starfsmannaaðstaða, matsalur og fundarsalir voru endurinnréttaðir í húsi á lóð nr. 166 við Laugaveg. Sams konar breytingar voru samþykktar af byggingarfulltrúa 2011 en ekki útgefið byggingarleyfi. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 23. júní 2021 og húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 23. ágúst 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar.
Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103032 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018270