Pósthússtræti 3
Pósthússtræti 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1136
19. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
711208-0700 Reitir fasteignafélag hf., Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055882 sem felst í að breyta núverandi starfsemi á 1. hæð í Mathöll í húsi á lóð nr. 5 við Pósthússtræti, með alls 12 rekstrareiningum í flokki ll, teg. c, og rúma samtals 161 í sæti á 1. hæð og 28-50 í kjallara, endurbyggja skúr og bæta við glerbyggingu á baklóð sem verður hluti Mathallar í húsi á lóð nr. 5 við Pósthússtræti á lóð nr. 3 við Pósthússtræti. Afgreiðist samhliða erindi BN058645. Stækkun: 150.5 ferm., 153.9 rúmm. Erindi fylgir afrit af greiðslukvittunum vegna þinglýsingar dags. 30. ágúst 2021, umsögn Minjastofnunar dags. 17. febrúar 2021 og yfirlit breytinga á A3 afriti af teikningum samþykktum 26. mars 2019. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. september 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal kvöð um tímabundna opnun yfir lóðamörk Pósthússtrætis 3, landnr.
100840 og Pósthússtrætis 5 landnr. 100829 fyrir útgáfu byggingarleyfis. Frágangur á
lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til
samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr.
greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100839 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025078