59. Ægisíða 119
59. Ægisíða 119
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1135
12. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
660293-2649 Ægisíða 119,húsfélag, Ægisíðu 119, 107 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að setja svalir á austurgafl íbúðar 0201 og svalir með hringstiga niður í garð á vesturgafl íbúðar 0101 í íbúðarhúsi á lóð nr. 119 við Ægisíðu. Erindi fylgir skýrsla um húsaskoðun dags. 7. október 2021, bréf frá hönnuði dags. 5. október 2021, ásamt teikningum framleiðanda af garðskúr, hæðablað dags. 30. janúar 1963 og samþykki lóðarhafa áritað á uppdrátt nr. A-101 dags. 14. júní 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. september 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 13. september 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Ægisíðu 117, 121 og 121A, Sörlaskjóli 26, 28 og 30 frá 5. ágúst 2021 til og með 2. september 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni
verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Fyrirspurnir

107 Reykjavík
Landnúmer: 106175 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017009