Brekkustígur 3A
Brekkustígur 3A
Síðast Frestað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1139
9. nóvember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Arndís Kristjánsdóttir, Brekkustígur 3A, 101 Reykjavík Ingólfur Ásgeirsson, Brekkustígur 3A, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að gera viðbyggingu á einni hæð með þaksvölum við austurhlið, gera nýjan kvist á vesturþekju og færa inngang einbýlishúss á lóð nr. 3A við Brekkustíg. Stækkun: 13.2 ferm., 38.0 rúmm. Erindi fylgir skuggavarp fyrir og eftir breytingu dags. 14. júní 2021, bréf frá hönnuði dags. 14. júní 2021, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 11. júní 2021, samþykki eigenda lóðar nr. 5 og 3 dags. 14. júní 2021, hæðablað dags.14. júní 1999 og yfirlit breytinga á uppdráttum samþykktum 25. apríl 2006. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. nóvember 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 8. nóvember 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Brekkustíg 3, 4, 4a, 4b, 5, 5a og 6 frá 30. september 2021 til og með 28. október 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100332 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007878