Borgartún 8-16A
Borgartún 8-16A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1131
14. september, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
450613-2580 Íþaka fasteignir ehf., Lynghálsi 4, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi til að fjarlægja útigeymslu við austurhlið 1. hæðar og til að innrétta fjögurra deilda leikskóla fyrir 60 börn í rými 0105, 0116 og 0117 á 1. hæð í Bríetartúni 9-11 á lóð nr. 8-16 við Borgartún. Erindi fylgir brunahönnun frá Örugg, dags. 22. júní 2021, bréf hönnuðar með skýringum og yfirliti breytinga, fundargerð Rekstrarfélags um lóð Höfðatorgs dags. 2. júlí 2021 og 17. ágúst 2021 og leigusamningur dags. 19. ágúst 2021. Erindi fylgir umsögn skrifstofu sviðsstýru dags. 8. september 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt
fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilið
samþykki heilbrigðiseftirlits.

105 Reykjavík
Landnúmer: 199350 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017780