Skipholt 1
Skipholt 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1124
20. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
560117-0350 Skipholt ehf., Starhaga 4, 107 Reykjavík Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051113 þannig að innréttaðar verða 36 íbúðir í stað hótels, byggðar svalir á götuhlíð og svalagangur á garðhlið, ofanábygging að Stórholti er felld út og í staðinn gerðar sameiginlegar þaksvalir og garður á baklóð við hús á lóð nr. 1 við Skipholt. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 25. maí 2021, greinargerð Lotu vegna burðarvirkis ódagsett ásamt því að lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2021. Stækkun/minnkun frá eldra erindi: xx ferm. Eftir stækkun/minnkun, A-rými: 3.493 ferm., 10.479,8 rúmm. B-rými: 375,5 ferm.
Svar

Vísað til athugasemda.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103024 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000606