Laugavegur 35
Laugavegur 35
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1133
28. september, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
710806-1360 Leiguíbúðir ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík Sótt er um leyfi til að endurnýja og hækka eldri hús að götu um eina hæð, byggja á baklóð fjögurra hæða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með 34 íbúðum, atvinnurýmum á jarðhæð og kjallara með geymslum og bílastæðum fyrir 7 bíla með aðkomu frá Vatnsstíg, á lóð nr. 35 við Laugaveg. Erindi fylgir umboð til hönnuðar dags. 28. janúar 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 28. september 2021. Stærð, A-rými: 2.718,6 ferm., 8.342,4 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal kvöð um umferð yfir lóðarmörk Vatnsstígs 4 og Laugaveg 35, einnig kvöð
um aðgengi yfir lóðamörk vegna flóttaleiða um brunastiga, fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með
vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum
dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan
til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á
byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október
2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að
vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað.
Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð
skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.