Fyrirspurn
420497-2109 Apartments and rooms ehf., Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að skipta upp eign 01 0205 í sjö eignarhluta, úr einni skráðri skrifstofu
í sjö vinnurými, jafnframt að setja nýjar svalir á norðaustur- norðvestur- og suðaustur
hlið og breyta núverandi svölum á norðaustur hlið á húsi nr. 23 á lóð nr. 21-23 við
Langarima.
Stærð húss helst óbreytt.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda dags. 11. janúar 2021 og samþykki allra á teikningu
breyttrar grunnmyndar og ásýndar dags. 10. maí 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. september 2021
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2021. Einnig fylgir
bréf skipulagsfulltrúa dags. 23. september 2021.