Vatnsstígur 4
Vatnsstígur 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1129
31. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
710806-1360 Leiguíbúðir ehf., Pósthólf 8814, 128 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja fjögurra hæða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með 13 íbúðum, atvinnurýmum á jarðhæð og kjallara með geymslum og bílastæðum fyrir 7 bíla á lóð nr. 4 við Vatnsstíg. Erindi fylgir umboð til hönnuðar dags. 28. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 23. júlí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. ágúst 2021 fylgir erindi, ásamt tölvupósti byggingarfulltrúa dags. 23. ágúst 2021 þar sem umsagnarbeiðni er dregin til baka. Stærð, A-rými: 2.145,8 ferm., 6.292 rúmm. B-rými: 117,8 ferm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal kvöð um umferð yfir lóðarmörk Vatnsstígs 4 og Laugaveg 35, einnig kvöð
um aðgengi yfir lóðamörk vegna flóttaleiða um brunastiga, fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101455 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025374