Fyrirspurn
580413-2420 B10 fasteign ehf., Borgartúni 28, 105 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að síkka glugga og bæta við hurð, koma fyrir svölum og tröppum
á suðurhlið íbúðar 0201 í íbúðarhúsi á lóð nr. 13. við Framnesveg.
Erindi fylgir óundirrituð yfirlýsing burðarþolshönnuðar dags. 24. mars 2022, fundargerð
húsfundar dags. 8. apríl 2021 og afrit af samþykktri aðalteikningu dags. 31. janúar 1952.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júlí 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. október 2022
fylgir erindi, einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022. Erindið var
grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Brekkustíg 4, 4a, 4b og 6 og Framnesvegi 11,
11a og 15, frá 14. júní til og með 13. júlí 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Kjartan
Páll Sveinsson og Phoebe Anna Jenkins dags. 10. júlí 2022, Haseeb Randhawa and
Stéphanie Desjardins dags. 12. júlí 2022 og Gunnar Helgi Kristinsson og María
Jónsdóttir dags. 13.júlí 2022. Einnig er lagður fram tölvupóstur Öldu Magnúsdóttur dags.
22. júní 2022 þar sem ekki er gerð athugasemd við framkvæmdina/tillöguna.