Njarðargata 5
Njarðargata 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1146
11. janúar, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Gunnar Magnússon, Kárastígur 13, 101 Reykjavík Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, Njarðargata 5, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og eignarhaldi í kjallara, byggja svalir, bæta flóttaleiðir úr kjallara, breyta skipulagi íbúða og breyta notkun bílskúrs í vinnustofu í húsi nr. 5 á lóð við Njarðargötu. Stærð A rýma : Óbreytt. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 27. apríl 2021 og yfirlit breytinga, ódagsett, samþykki eigenda dags. 21. júní 2021. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 29. maí 2021, bréf hönnuðar dags. 27. júlí 2021, útreikningur birtuskilyrða hönnuðar móttekið 3. ágúst 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. ágúst 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 20. ágúst 2021. Húsaskoðunarskýrsla dags. 23. ágúst 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. janúar 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2022. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Njarðargötu 7 og Fjólugötu 19B, 21, 23 og 25, frá 10. nóvember 2021 til og með 8. desember 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Þorvarður Jón Löve og Guðrún Inga Ingólfsdóttir dags. 8. desember 2021. Einnig er lagður fram tölvupóstur kínverska sendiráðsins dags. 12. nóvember 2021 þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til
þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.