Hjarðarhagi 2-6
Hjarðarhagi 2-6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1128
24. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
600169-2039 Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Sótt er um leyfi til að byggja lyftu utan á hús, breyta staðsetningum tveggja glugga á vesturhlið, breyta innra skipulagi jafnframt því að gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á húsi nr. 5 við Brynjólfsgötu á lóð nr. 2-6 við Hjarðarhaga. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á gildandi teikningum dags. 9. júní 1998 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. maí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júlí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2021. Minnkun vegna rangrar skráningar: -102,0 ferm., og verður 1.153,3 rúmm. eftir breytingu.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.