Borgartún 8-16A
Borgartún 8-16A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1114
11. maí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
520613-1370 Höfðatorg ehf., Lynghálsi 4, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta, níu hæða skrifstofubyggingu, H3 og einnar hæðar glerbyggingu, G3, sem tengist byggingum sem fyrir eru á lóð á sameiginlegum bílakjallara og verður Katrínartún 6, mhl. 07, á lóð nr. 8-16 við Borgartún. Erindi fylgir samantekt á stærðum og byggingamagni á lóð dags. 13. apríl 2021, bréf hönnunarstjóra dags. 27. apríl 2021 og brunahönnun frá Örugg, verkfræðistofa, dags. 13. apríl 2021. Stærð, A-rými: 12.151.4 ferm., 46.700,3 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsing
vegna lóðar sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en
við lokaúttekt.Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 199350 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017780