Skólabrú 2
Skólabrú 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1117
1. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
560807-0660 Höfuðborgareignir ehf., Sigtúni 28, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að dýpka kjallara um 15 cm., grafa frá bakhlið og útbúa verönd þar, breyta innra skipulagi og innrétta 8 gistirými fyrir 28 gesti ásamt því að gluggar og þak verða endurnýjuð í upprunalegri mynd, hús sléttpússað og málað og nýr inngangur gerður úr glerskála sem byggður er yfir fornminjar og tengir Lækjargötu 10 og 12 við hús á lóð nr. 2 við Skólabrú. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 24. mars 2021, dags. 8. apríl 2021 og Greinargerð hönnunar dags. 10. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. maí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2021. Stækkun kjallara: xx rúmm. Glerskáli, hluti á lóð: 99,8 ferm., 510 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing
byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100903 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017651