Lækjargata 12
Lækjargata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1117
1. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
560807-0660 Höfuðborgareignir ehf., Sigtúni 28, 105 Reykjavík Sótt er um lítils háttar breytingar á 1. hæð til að tengjast glerskála sem byggður verður yfir fornleifagarð og tengir Lækjargötu 10, Skólabrú 2 við hótel á lóð nr. 12 við Lækjargötu. Erindi fylgir greinargerð hönnunar dags. 10. mars 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. apríl 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. maí 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2021. Glerskáli, hluti á lóð: 6 ferm., 32,1 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing
byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.