Bústaðavegur 87
Bústaðavegur 87
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1127
17. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
470115-1140 Hækkun ehf., Klettási 19, 210 Garðabær Sótt er um leyfi til að hækka þak og byggja tvo kvisti og viðbyggingu til suðurs ásamt því að koma fyrir svölum og breyta innra skipulagi íbúðar 0201, auk þess að skipta upp þvottaherbergi og gera hurð út í garð á 1. hæð í húsi á lóð nr. 87 við Bústaðaveg. Erindi fylgir yfirlýsingu og kvöð meðeigenda dags. 4. febrúar 2019, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. apríl 2021, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2021. Stækkun: 74,8.2 ferm., 153.8 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Skilyrt
er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði
þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108263 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008968