Rofabær 7-9
Rofabær 7-9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1118
8. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
460616-0770 Rofabær 7-9 ehf., Dalaþingi 12, 203 Kópavogur Sótt er um leyfi til að byggja tveggja og fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús með 31 íbúð, einangrað og klætt að utan, á kjallara með 27 bílastæðum, 38 hjólastæðum og atvinnu- og þjónusturýmum á hluta jarðhæðar á lóð nr. 7-9 við Rofabæ. Erindi fylgir minnisblað um hljóðráðgjöf frá Myrru hönnunarstofu dags. 23. febrúar 2021 og brunavarnartexti frá Lotu, dags. 21. apríl 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2021. Stærð, A-rými: 3.894,2 ferm., 12.244,2 rúmm. B-rými: 292,6 ferm., xx rúmm. Samtals A- og B-rými: xx ferm., xx rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111076 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014262