Fyrirspurn
521115-1650 K7 ehf., Krókhálsi 11, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar skrifstofuhús úr krosslímdum timbureiningum
ásamt auglýsingaskiltaturni við innkeyrslu á lóð nr. 15 við Hestháls.
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2020.
Erindi fylgja útreikningar á varmatapsramma dags. 19. mars 2021 og greinargerð
hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða ódagsett.
Stærð, mhl. 01: 139,8 ferm., 378,4 rúmm.