Fyrirspurn
520320-0160 Gufufoss ehf., Ármúla 3, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að sameina matshluta 05 og 06 í mhl.05, hækka útveggi og þak
og innrétta 33 nýjar íbúðir með aðkomu frá Þverholti, með geymslum og 6 vinnustofum
á jarðhæð í skrifstofu- og atvinnuhúsnæðis (mhl.06) og reisa hjólaskýli, mhl.06, við
Þverholt 18 á lóðinni Rauðarárstígur 31- Þverholt 18.
Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.244.0 dags. 16. ágúst 2016, hæðablað teiknað í apríl 1968
og mæliblað 1.244.0 síðast breytt 23. janúar 1992 ásamt yfirliti breytinga á A3 afriti af
aðalteikningum stimpluðum 26. maí 1998 og 26. september 2000.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. apríl 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2021.