Ásvallagata 60
Ásvallagata 60
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1118
8. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Þorvarður Jóhannesson, Noregur, Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu, með snyrtingu í kjallara og stækkun við eldhús og nýrri aðkomu á 1. hæð, við norðvestur hlið einbýlishúss á lóð nr. 60 við Ásvallagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. júní 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 7. júní 2021. Stækkun: 20.6 ferm., 100.9 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100743 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007360