Bergþórugata 18
Bergþórugata 18
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1135
12. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
430304-3640 Landslagnir ehf., Hyrjarhöfða 2, 110 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús með þremur íbúðum úr forsteyptum samlokueiningum á lóð nr. 18 við Bergþórugötu. Erindi fylgir brunahönnun frá Örugg, verkfræðistofa dags. 8. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2021. Stærð, A-rými: 240,2 ferm., 731,7 rúmm. Stærð B-rými: 7,1 ferm. Samtals: 247,3 ferm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing
byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.