Fyrirspurn
551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að reisa upphitað glerhýsi sem tengir saman smiðju, fjós og hlöðu sem
verða endurbyggð og sameinuð í mhl. 01, innrétta veitingastað í flokki II, teg. c fyrir 55
gesti í smiðju, vinnu- og fundaaðstöðu í fjósi, borðsal í hlöðu og gróðurhús í
tengibyggingu, einnig er sótt um leyfi til að endurbyggja skemmu, mhl. 02 og innrétta
þar þjónustu fyrir skólahópa og leiksvæði og skrifstofu fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur
á lóð nr. 10-12 við Rafstöðvarveg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 26. ágúst 2020 og minnisblað um
ástand bygginga á lóð frá verkfræðistofunni Hnit dags. 12. febrúar 2021.
Stækkun: 41 ferm., 142,7 rúmm.
Eftir stækkun: 410,1 ferm., 1.257,9 rúmm.