Jöfursbás 7
Jöfursbás 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1107
16. mars, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
470920-2460 Jöfursbás 7 ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja bílakjallara með 52 stæðum sem tengir þrjú fjölbýlishús á lóð nr. 7 við Jöfursbás. Erindi fylgir brunahönnun frá Örugg, verkfræðistofa dags. 10. febrúar 2021. Stærð, A-rými: 1.696,2 ferm., 5.783,4 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Komi til þess að framkvæmdir stöðvist eftir byggingu kjallara, ber lóðarhafa að ganga
þannig frá yfirborði lóðar að sómi sé að.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

112 Reykjavík
Landnúmer: 228386 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131057