Njálsgata 64
Njálsgata 64
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1123
13. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
440518-0790 Árogin ehf., Suðurmýri 18, 170 Seltjarnarnes Sótt er um leyfi til að sameina verslunarrými á jarðhæð og innrétta sal/verslun, fjarlægja lyftu og breyta innra skipulagi íbúða og til að gera björgunarsvalir í risi og glugga að porti íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 64 við Njálsgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2021 og skýringarmyndir vegna lofthæðar og birtuskilyrða. Stækkun: 3,3 ferm., 6,4 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni
verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið
samþykki heilbrigðiseftirlits.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102446 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023433