Hallgerðargata 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Byggingarfulltrúi nr. 1107
Samþykkt
Fyrirspurn
580117-1200 Hallgerðargata ehf. , Laugavegi 7, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055390 þannig að svalagangi hefur verið skipt út fyrir nýtt stigahús og verða þannig breytingar á íbúðum og útlitum í norðurhluta, stigahús og undirgangur hafa breyst ásamt því að gólf geymsluhluta kjallara hafa verið hækkuð, geymsluhluti kjallara stækkaður og skráningarnúmerum kjallara breytt í húsi á lóð nr. 1 við Hallgerðargötu. Erindi fylgir yfirlit breytinga og bréf hönnuða dags. 8. febrúar og 11. mars 2021 og yfirlit yfir breyttar stærðir. Breyttar stærðir: A-rými: 8.201,6 ferm., 26.011,5 rúmm. B-rými: 2.160 ferm. Þar af leikskóli 739,9 ferm. Samtals: 10.361,6 ferm. Stækkun: 370,1 ferm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.

Síðasta markaðsverð
56.000.000 kr.
Fjölbýli · 51 m² · 16.07.2024
Kaupskrá 28 eignir
56.000.000 kr. 16.07.2024
Fjölbýli · 51 m² · 1 herb. · bygg. 2023 · HMS
54.700.000 kr. 22.03.2024
Fjölbýli · 52 m² · 1 herb. · bygg. 2023 · HMS
50.000.000 kr. 14.03.2024
Fjölbýli · 48 m² · bygg. 2023 · HMS
54.500.000 kr. 09.02.2024
Fjölbýli · 51 m² · 1 herb. · bygg. 2023 · HMS
83.400.000 kr. 20.12.2023
Fjölbýli · 102 m² · 3 herb. · bygg. 2023 · HMS
… og 23 eignir til viðbótar
Deiliskipulag
Deiliskipulag Kirkjusands
Samþykkt 30.11.1990 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag