Skyggnisbraut 1
Skyggnisbraut 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1113
4. maí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
650699-2389 Fjarðarmót ehf, Melabraut 29, 220 Hafnarfjörður Sótt er um leyfi til að byggja, steinsteypt fjölbýlishús með 49 íbúðum, einangruð og klædd að utan á 3-4 hæðum og seinni hluta bílakjallara fyrir 69 bíla sem verður sameiginlegur fyrir alla lóðina, en húsin verða Skyggnisbraut 5 og 7 (mhl. 04 og 05), Gæfutjörn 4-6 og Jarpstjörn 1-3 (mhl. 06) á lóð nr. 1 við Skyggnisbraut. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2019. Erindi fylgir heildarútreikningur á varmatapi dags. 2. febrúar 2021, greinargerð aðalhönnuðar dags. 18. mars 2021 og hljóðvistarskýrsla, 2. útgáfa dags. 22. febrúar 2021. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. mars 2021, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021. Stærðir: Stækkun mhl. 01: 1.789,6 ferm., xx rúmm. Mhl. 04, A-rými: 1.783,9 ferm., 5.338,1c rúmm. B-rými: 72,9 ferm. Mhl. 05, A-rými: 795,2 ferm., 2.307,3 rúmm. B-rými: 41,2 ferm. Mhl. 06, A-rými: 2.608,2 ferm., 8.048 rúmm. B-rými: 98,7 ferm. Samtals A-rými: 6.976,9 ferm. Samtals B-rými: 212,8 ferm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 226841 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126425