Fyrirspurn
510497-2799 Félagsbústaðir hf., Þönglabakka 4, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka svalir, gera nýjan flóttastiga, breyta
útitröppum og innra skipulagi og innrétta þrettán íbúða áfangaheimili í húsi á lóð nr. 65
við Njálsgötu.
Erindi fylgir greinargerð um brunamál dags. 25. janúar 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. mars 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. júní 2021 fylgir
erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2021. Tillagan var grenndarkynnt fyrir
hagsmunaaðilum að Njálsgötu 67 og Barónsstíg 33 frá 25. maí 2021 til og með 23. júní
2021. Engar athugasemdir bárust.