Norðurstígur 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1105
Samþykkt
Fyrirspurn
630304-2450 A 16 fasteignafélag ehf., Pósthólf 1100, 121 Reykjavík Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054803 þannig að gerðar eru minni háttar breytingar á innra skipulagi, bætt við gluggum á böð, svalir stækkaðar og staðsetning húss á afstöðumynd lagfærð, á lóð nr. 5 við Norðurstíg 5.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing
sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100204 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024207
Síðasta markaðsverð
350.000.000 kr.
Fjölbýli · 291 m² · 19.01.2024
Kaupskrá 5 eignir
350.000.000 kr. 19.01.2024
Fjölbýli · 291 m² · 2 herb. · HMS
56.000.000 kr. 07.09.2021
Fjölbýli · 83 m² · 2 herb. · bygg. 1902 · HMS
39.300.000 kr. 19.05.2021
Fjölbýli · 107 m² · 3 herb. · bygg. 1952 · HMS
31.500.000 kr. 19.06.2019
Fjölbýli · 98 m² · 1 herb. · bygg. 1952 · HMS
36.500.000 kr. 12.10.2017
Fjölbýli · 171 m² · 2 herb. · bygg. 1952 · HMS
Deiliskipulag
stgr. 1.132.0, Norðurstígsreitur
Samþykkt 17.03.2004 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag