Hraunbær 143
Hraunbær 143
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1110
13. apríl, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
581281-0139 Húsvirki ehf., Síðumúla 30, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að byggja þrjú fjölbýlishús með samtals 58 íbúðum, mhl.01, 4-5 hæða auk kjallara, með 31 íbúðum, mhl.02, 2ja hæða með 4 íbúðum og mhl.03, 3-4 hæða auk kjallara, með 23 íbúðum, auk sorpskýlis, mhl.04, á lóð nr. 143 við Hraunbæ. Stærðir: Mhl.01: 3.617.0 ferm., 11.256.5 rúmm. Mhl.02: 682.6 ferm., 2.246.4 rúmm. Mhl.03: 2.220.0 ferm., 6.915.5 rúmm. Mhl.04: 20.0 ferm., 59.2 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 4.341.2 dags. 9. maí 2019, hæðablað 4.341.2-B5 dags. 28. október 2020, hæðablað 4.341.2-B6 dags 17.03.2021 og varmatapsútreikningar dags. 16. janúar 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2021. Gjald: 11.200 kr.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

110 Reykjavík
Landnúmer: 227325 → skrá.is
Hnitnúmer: 10127645