Skólavörðustígur 36
Skólavörðustígur 36
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1105
2. mars, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
570817-0350 JB ferðir ehf., Mýrargötu 26, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða staðsteypt hús með verslunarrými á jarðhæð og einni íbúð á annarri og þriðju hæð, á lóð nr. 36 við Skólavörðustíg. Erindi fylgir greinagerð aðalhönnuðar, ódags. og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 1. mars 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. febrúar 2021. Stærð húss er: A -rými: 267,0 ferm., 831,0 rúmm. B- rými : 9,8 ferm., 33,8 rúmm. Samtals: 294,0 ferm., 864,8 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.