Lautarvegur 26
Lautarvegur 26
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1107
16. mars, 2021
Annað
Fyrirspurn
Sólveig Berg Emilsdóttir, Hörgshlíð 18, 105 Reykjavík Guðmundur Árnason, Hörgshlíð 18, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða tvíbýlishús með kjallara og bílskúr, einangrað og klætt að utan á lóð nr. 26 við Lautarveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. mars 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021. Stærð, A-rými: 349,5 ferm., 1.149,5 rúmm., B-rými: 28,8 ferm., 92,3 rúmm. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
103 Reykjavík
Landnúmer: 213575 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097718