Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013,
skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á
fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og
skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á
byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en
þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu. Samráð skal haft við Veitur vegna lagna í jörðu áður en framkvæmdir
hefjast. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis,
henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.