Hallgerðargata 13
Hallgerðargata 13
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1097
5. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
551214-0600 105 Miðborg slhf., Hagasmára 3, 201 Kópavogur Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN055918 sem felst meðal annars í því að gluggapóstar eru grynnkaðir, 5. hæð er stækkuð á kostnað þaksvala, flóttastigi er gerður milli þaksvala 4.- og 5. hæðar, hæðum er skipt í aðskildar einingar, gert er ráð fyrir verslunarrýmum og kaffisölu á 1. hæð og skráningartafla er uppfærð í skrifstofu- og þjónustuhúsi á lóð nr. 13 við Hallgerðargötu. Stærðir ofanjarðar e. breytingu: 10.784.5 ferm., 42.956.3 rúmm. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 7. desember 2020, greinargerð hönnuða uppfærð 27. nóvember 2020, fylgibréf hönnuðar dags. 16. desember 2020, og tölvupóstur frá hönnuði dags. 4. janúar 2021, lóðauppdráttur 1.349.5 dags. 23. janúar 2020, hæðablað útgáfa E dags. 9. nóvember 2019 ásamt yfirlit yfir bílastæðagerðir í kjallara teikn.nr. LB-A-00-04 útg. A dags. 27. nóvember 2020.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013,
skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á
fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og
skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á
byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en
þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 225433 → skrá.is
Hnitnúmer: 10124116