Ármúli 38
Ármúli 38
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1124
20. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
650417-1780 JIG Málun ehf., Ármúla 38, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til koma fyrir svölum á mhl. 02 rými 0302 á suðurhlið húss, á lóð nr. 38 við Ármúla. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 5. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. janúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. júní 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa frá 29. júní 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Ármúla 40 og Síðumúla 23 og 25 frá 17. maí 2021 til og með 15. júní 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt
fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.