Koparslétta 6
Koparslétta 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1100
26. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
540504-4660 Fagverk verktakar ehf., Flugumýri 26, 270 Mosfellsbær Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN057033 þannig að á lóðarmörkum til norðurs, að lóð nr. 10, er gerð 3 metra há grindargirðing að hluta og 6 metra hár steyptur stoðveggur, einnig er sótt um leyfi til tímabundinnar staðsetningar gáms, mhl. 10, með kaffi-og salernisaðstöðu fyrir bílstjóra á lóð nr. 6-8 við Koparsléttu. Stærð mhl.10: 27.0 ferm., 77.6 rúmm. Erindi fylgir samþykki undirritað samkomulag lóðarhafa lóðar nr. 10 við Koparsléttu dags. 13. nóvember 2020, mæliblað 34.533.8 endurútgefið 5. nóvember 2019, hæðablað fyrir Kistumel 6-8 útgáfa B dags. nóvember 2017 og yfirlit breytinga á uppdráttum dagsettum 12. nóvember 2019.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013
skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.