Fyrirspurn
Kolbeinn Karl Kristinsson, Bergstaðastræti 50B, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að síkka tvö gluggaop og gera svalahurðir, gera svalir á
norðurhlið, nýjar tröppur á suðurhlið, færa alla glugga í upprunalegt horf og klæða með
timbri, íbúðarhús á lóð nr. 50B við Bergstaðastræti.
Stækkun: 44.8 ferm., 91,2 rúmm.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 26. október 2020, umsögn
Minjastofnunar dags. 15. desember 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. desember 2020
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. desember 2020. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 21. desember 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. mars 2021 fylgir
erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Baldursgötu 4, 6 og
6A,Bergstaðastræti 48, 48A, 50, 50A, 52 og 52A og Laufásvegi 41, 41A, 43, 45, 45B,
45C og 47 frá 3. febrúar 2021 til og með 3. mars 2021. Engar athugasemdir bárust.