Fyrirspurn
Óli Ragnar Gunnarsson, Heiðargerði 11, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri framkvæmd sem er viðbygging ofan á svalir og
jafnframt er sótt um nýjar svalir á 2. hæð suðvesturhliðar, á húsi á lóð nr. 11 við
Heiðargerði.
Erindi fylgir samþykki nágranna Heiðagerði nr. 3 og 11 ódags., bréf hönnuðar um ástand
vegna leka og yfirbyggingu svala dags. 20. desember 2020 og bréf hönnuðar dags. 25.
janúar 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. apríl 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2021.
Stækkun 13,5 ferm., 37,6 rúmm.