Silfratjörn 26
Silfratjörn 26
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1100
26. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
681206-0510 Stéttafélagið ehf., Breiðhellu 12, 221 Hafnarfjörður Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN056152 vegna lokaúttektar, sem felst meðal annars í því að byggingarlýsing hefur verið uppfærð, innra skipulagi, útliti og efnisvali stigahandriðs er breytt ásamt breytingum á lóðafrágangi við raðhús nr. 26-32 á lóð nr. 26 við Silfratjörn. Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 9. desember 2020 og yfirlit breytinga á afriti af samþykktum uppdráttum. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa.

113 Reykjavík
Landnúmer: 226826 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126394