Einimelur 10
Einimelur 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1102
9. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Einar Baldvin Árnason, Einimelur 10, 107 Reykjavík Sigurbjörg J Skarphéðinsdóttir, Einimelur 10, 107 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum og til þess að byggja ofan á bílskúr og stækka íbúð einbýlishúss á lóð nr. 10 við Einimel. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 24. nóvember 2020, umsögn Minjastofnunar dags. 18. maí 2020, svar skipulagsfulltrúa við fyrirspurn, SN200336, dags. 12. júní 2020, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. nóvember 2020, mæliblað 1.526.2 með síðustu breytingu dags. 8. ágúst 1962 ásamt ódagsettu hæðablaði og yfirlit breytinga ásamt skuggavarpi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. febrúar 2021 fylgir erindi og bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2021. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Einimel 7, 8, 9, 12 og 14 frá 7. janúar 2021 til og með 4. febrúar 2021. Engar athugasemdir bárust. Stækkun: 40.1 ferm., 207.5 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr.
112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106083 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008712