Hringbraut Landsp.
Hringbraut Landsp.
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1096
22. desember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
500810-0410 Nýr Landspítali ohf., Skúlagötu 21, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir umferðar- og tæknigöngum (mhl.43) meðfram meðferðarkjarna og tengjast göngum við barnaspítala og tæknigangi austan kvennadeildar, gangarnir ná austur fyrir meðferðarkjarna og munu tengjast fyrirhugaðri bílageymslu undir torginu á lóð Landspítala við Hringbraut. Erindi fylgir útreikningur Ask arkitekta á varmatapi dags. 24. nóvember 2020. Stækkun nú: 1.920,7 m2 7.993,6 m3
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.