Fyrirspurn
Eyjólfur Reynisson, Kleifarvegur 12, 104 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að stækka stofu á kostnað svala, bæta við glugga á suðurhlið og
fjarlægja burðarvegg að hluta í íbúð 0101 í tvíbýlishúsi á lóð nr. 12 við Kleifarveg.
Stækkun: 7.0 ferm., 18.9 rúmm.
Erindi fylgir yfirlýsing burðarvirkishönnuðar sem afrit af tölvupósti dags. 6. nóvember
2020 og samþykki eigenda íbúðar 0001 dags. 18. nóvember 2020 og yfirlit breytinga á
uppdráttum samþykktum16. júlí 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. janúar 2021
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. janúar 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 1. febrúar 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. apríl 2021 fylgir
erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 19. apríl 2021.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Kleifarvegi 10, 13, 14 og 15 og
Laugarásvegi 15 og 21 frá 9. mars 2021 til og með 9. apríl 2021. Engar athugasemdir
bárust.