Sæmundargata 15
Sæmundargata 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1095
15. desember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
510615-0690 Fasteignafélagið Eyjólfur ehf., Smáratorgi 3, 201 Kópavogur Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, mhl. 02, fjórar hæðir og kjallara, steinsteypt, einangruð og klædd glerklæðningu, við hátæknisetur Alvotech á lóð nr. 15-19 við Sæmundargötu. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist dags. 17. nóvember 2020, samþykki fasteignafélagsins Sæmundar dags. 17. nóvember 2020, minnisblað frá Lagnatækni um kælikerfi dags. 25. nóvember 2020 og yfirlit yfir eldra hús. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 7. desember 2020 og bréf hönnuðar varðandi athugasemdir dags. 10. desember 2020. Stækkun, A-rými: 12.252,3 ferm., 57.445 rúmm. B-rými: 110,7 ferm., 685 rúmm. Samtals stækkun: 12.363 ferm., 58.130 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og
aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal
haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við
yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt
byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

102 Reykjavík
Landnúmer: 220416 → skrá.is
Hnitnúmer: 10104610