Fyrirspurn
510497-2799 Félagsbústaðir hf., Þönglabakka 4, 109 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að gera breytingar og lóð ásamt því að breyta innra skipulagi og
fjölga eignum um fjórar, gera tvær nýjar íbúðir í kjallara stigahúss nr. 66, mhl.01, og
aðrar tvær í kjallara stigahúss nr. 68, mhl.02, í fjölbýlishúsi á lóð nr. 66-68 við
Kleppsveg.
Erindi fylgir minnisblað burðarvirkishönnuðar hjá VSÓ ráðgjöf, dags. 6. nóvember 2020
og lóðauppdrættir unnir af teiknistofunni Landslag dags. 26. apríl 2021 og yfirlit
breytinga á A3 afriti af teikningum samþykktum 23. apríl 2002.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. desember 2020
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2020. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 14. desember 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. júlí 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2021.