Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1127
17. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
650117-1230 U22 ehf., Katrínartúni 2, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja fjögur tveggja til fimm hæða fjölbýlishús með 83 íbúðum, atvinnurýmum á götuhlið v/Hringbraut og bílakjallara fyrir 86 bíla, steinsteypt, einangruð að utan og með loftræstri klæðningu á Steindórsreit á lóð nr. 79 við Sólvallagötu. Erindi fylgir uppfærð brunahönnun frá Örugg, verkfræðistofu dags. 1. júní 2021, minnisblað um brunahönnun frá sama dags. 1. júlí 2021, greinargerð um hljóðvist frá Eflu dags. 17. apríl 2019, uppfærð hljóðvistargreinargerð frá Myrra, hönnunarstofa dags. 23. júní 2021 og ódagsett minnisblað frá sama um svör við athugasemdum ásamt vindgreiningu +Arkitekta dags. 28. júní 2021. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2020, umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 7. desember 2020. Stærð, A-rými: 9.247,7 ferm., 28.874 rúmm. B-rými: 3.704,1 ferm. Samtals: 12.951,8 ferm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með
vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100717 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019466