Sæviðarsund 90
Sæviðarsund 90
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Hrannar Björn Arnarsson
Byggingarfulltrúi nr. 1121
29. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Hrannar Björn Arnarsson, Sæviðarsund 90, 104 Reykjavík Sótt er um leyfi til að stækka mhl. 01 með því að gera viðbyggingu við suðvesturhlið þar sem verður eldhús og borðstofa, auk þess sem bílskúr er stækkaður og breytt þannig að þar verður vinnustofa með eldhúsi og baði, í húsi á lóð nr. 90 við Sæviðarsund. Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 13. október 2020 og bréf hönnuðar dags. 26. janúar 2021 og 20. apríl 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 2. nóvember 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. febrúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. júní 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2021. Tillagan var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Sæviðarsundi 84, 86 og 88 og Skipasundi 55 og 57 frá 25. maí 2021 til og með 23. júní 2021. Engar athugasemdir bárust. Stækkun mhl. 01 er: 40,9 ferm., 112,5 rúmm. Stækkun mhl. 02 er 16,9 ferm., 46,6 rúmm. Stækkun er alls fyrir báða mhl 01 og 02 : 57,8 ferm., 159,1 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105007 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022814