Sótt er um leyfi til að byggja kvist á norðurþekju, koma fyrir þakglugga og innrétta herbergi, færa stiga upp í rishæð ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðri færslu á reykháf tvíbýlishúss á lóð nr. 39 við Hátún. Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020. Stækkun mhl. 01: 26,9 rúmm. Stækkun mhl. 02: 22,7 ferm., 53,3 rúmm. Gjald kr. 11.200